Ađalvalmynd

Góđir hálsar

Auglýsing

Góđ músík

Rétti klúbburinnÁrni Baldur Möller

Sæl öll. Við Hildur viljum þakka allar góðar kveðjur sem okkur hefur borist hér. Litli prinsinn dafnar og vel og er kominn í réttu treyjuna svona ykkur að segja. Nýjar myndir eru komnar af stubbnum sem hægt er að sjá á albúminu sem myndin að neðan linkar í.


Bestu kveðjur
Litla fjölskyldan

Lítill prinsÁrni Baldur Möller

Í gær, þann 30. september 2007 fæddist okkur Hildi fjallmyndarlegur lítill drengur. Hann var 15 merkur og 51 cm við fæðingu. Öllum heilsast vel og við erum núna komin heim í Svöluhöfðann þar sem við erum öll að kynnast hvoru öðru. Við erum búin að setja myndir af þeim stutta á netið sem allir geta séð hér .

Kv.
Árni, Hildur og litli stúfur.

Ekki lengur Reykvíkingur.... í bili.Árni Baldur Möller

Nú er maður svo gott sem fluttur til Íslands aftur eftir námsútlegðina í Danmörku. Ég hef þrátt fyrir brottflutning til Danmerkur litið á mig sem Reykvíking til halda mínum upprunalegu rótum. En núna er ég ekki lengur Reykvíkingur!

Núna er ég MOSFELLSBÆINGUR !! Það hef ég aldrei verið áður og fylgir því sérstök tilfinning að vera orðinn hluti af nýju bæjarfélagi. Eftir að ég klára Mosfellsbæings-tímabilið þá verðum við fjölskyldan Kópavogsbúar. Þar með er ljóst að það mun líða nokkur stund áður en ég verð Reykvíkingur á nýjan leik. Í millitíðinni ætla ég að einbeita mér að því að standa mig vel sem Mosóari og Kópari. Ég held að ég geti leyst það hlutverk af sóma sem Mosóskur og Kópvogskur fjölskyldufaðir.

Núna verð ég fara út enn eina ferðina til að klára alveg Danmerkurkaflann með því að flytja út úr íbúðinni og verja meistaraverkefnið mitt sem ég skilaði fyrir rúmri viku. Eftir það get ég slegið mér loks til rólegheita með henni Hildi minni þar sem við bíðum bæði spennt eftir litla erfingjanum okkar.

Þar til síðar...

kv.
Mosfellsbæingurinn

Verzlunarmannahelgi í DKÁrni Baldur Möller

Það er ekki hægt að segja að verzlunarmannahelgi hjá manni þetta árið. Megin hluta hennar mun ég eyða hérna í herbergi 022 í byggingu 325 í DTU að vinna að meistaraverkefninu mínu góða. Þetta gengur bara nokkuð vel og reikna ég með að heimferðardagurinn verði 30. ágúst en einmitt fyrr um þann dag ætla ég að skila verkefninu. Svo tekur við smá frítími á Íslandi þar sem ég ætla m.a. að fara í brúðkaupið hjá Kristínu systur og Erni Ævari þann 1. september og reka inn nefið á endurfundum 2002 útskriftarárgangs VÍ þann 8. september. Reikna ég svo með því að fljúga aftur út til Danmerkur þann 10. september að ganga frá flutningum. Ég ætla svo að nota tækifærið og verja verkefnið þann 14. september og vona ég að aðstæður verði allar til staðar til að það gangi allt saman upp. Svo flýg ég rakleiðis aftur til Íslands þar sem ég byrja sennilega í nýju vinnunni minni hjá Landsneti þann 17. september. Þ.a. það verður ansi hasarteraður tími þarna um fyrri helming september mánaðar. Stefnan er svo jafnvel sett á að halda lítilsháttar útskriftarhóf í lok september en það fer svolítið eftir því hvort frumburðurinn verði búinn að láta sjá sig eða ekki.

Næstu 2 mánuðir verða sem sagt fjör þótt ekki sé meira sagt.

Topp 5: Hljómsveitir sem mættu koma með comeback
1. The Smiths
2. At the Drive-In
3. Soundgarden
4. A Perfect Circle
5. Pink Floyd

Kveðja
ÁBM

Lífiđ er listiÁrni Baldur Möller

Ég tók mjög stóra ákvörðun... þó ekki jafn stóra og Hjörtur tók í sundlaug Akureyrar hér um árið.

Ég hef ákveðið að gerast listamaður.

Topp 5 listamaður.

Ég hef verið að leiða hugann að ákveðnum lista undanfarna daga þegar ég hef setið einn í lestinni á leiðinni til og frá skóla. Hvað eru topp 5 bestu tónleikar sem ég hef farið á um ævina? Hér kemur niðustaðan..

TOPP 5: Bestu tónleikar lífs míns.

1. TOOL á Hróarskeldu 2006
Laaaangflottasta númerið á hátíðinni. Mesta sjónarspil sem ég hef séð á sviði.
2. Apparat Organ Quartet á Vega í nóv 2005
Voru ekki langir en guð minn góður hvað þeir voru þéttir og hvað þeir náðu upp meiriháttar stemningu. Sjísus.
3. SigurRós á Klambratúni júlí 2006
Ógleymanleg stund undir sólsetri um síðsumar í Reykjavík. Þjóðarstolt!
4. Morrissey í Laugardalshöll ágúst 2006
Meistarinn fór í gegnum 4 skyrtur. Nuff said.
5. Sufjan Stevens á Vega í nóvember 2006
Mikill snillingur sem hélt frábæra tónleika og myndaði með sérstakri sviðsframkomu sinni sérstaka og skemmtilega stemningu.

Svo stefni ég á að hafa svona topp 5 lista með öllum mínum færslum... jafnvel þó það verði topp 5 álegg á brauð... sem er í sjálfu sér jafn góður listi og hver annar.

p.s. ég er hættur að sleppa hástöfum eins og hjörtur....... mjög.

ósigrandi her?Árni Baldur Möller

carlos ..
.. teveZ



búið ykkur undir hinn ósigrandi her sem Manchester United verður...


mínar einu áhyggjur eru að Yossi Be - Na - Y - Uou - Ou - you - ööö - ÚÚn - (eriddarétt??) - Oueianún - - - - Bennasjúnsssss verði match winner á næsta tímabili....

..yes about thaaaaat...

þetta verður athyglisvert allavega

- á

mollerinn punktur com-inn hingađ ...Árni Baldur Möller

ég ákvað að gera eitt sem ég hef ekki gert í nokkuð langan tíma. ég fór einn stóran blogg vafurs hring til að taka statustékk á vinum og kunningjum sem ég skoða ekki reglulega. ég tók eftir að afar fáir voru búnir að breyta hlekknum á mig úr mollerinn.com  í mollerinn.bloggar.is eftir að ég færði mig hingað við andlát serversins míns. því datt mér það snjallræði að fara inn á domain registration síðuna mína og áframbeina mollerinn.com hingað. það tókst og því verður öllum sem reyna að komast á mollerinn.com beint hingað þannig það má segja að mollerinn.com sé live! á nýjan leik.

í öðrum fréttum þá er maður þessa dagana í skólanum eins og maníak og drekkur maður því lítið koníak.......... ekki?
takmarkið er að vinna sér í haginn svo að maður geti með þokkalegri samvisku kíkt yfir eina helgi til íslandsins góða. möllerinn á klakanum er merkilegur viðburður því slíkt hefur ekki gerst síðan 2. dag þessa árs. merkið við það í dagatalinu að endurkoman verður 19. júlí, árla morguns eða 9:00. *murph*

fór á transformers í bíó á frumsýningardaginn 4. júlí sl. ég hef eiginlega ekki farið í bíó á nokkra mynd á frumsýningardag síðan í den tíð. verð að segja að mér fannst transformers alveg hreinlega æðisleg, púkalega gómsætur díalógur, myndskreyttur með munnvætandi visjúölum þar sem 20 metra róbótar jafna hálfu stórborgirnar við jörðu. myndir eins og transformers eru nauðsynlegar fyrir innri smástrákinn í sálinni manns.

ekki enn búinn að fara á die hard fjögur komma núll. það er næst á dagskrá. það er hreinn glæpur að vera ekki búinn að fara, sér í lagi þar sem hún hefur verið að fá glimrandi dóma.

ég veit ekki alveg af hverju, en ég er farinn að blogga eins og hjörtur... með enga stóra stafi... ég vona að þú sért ekki búinn að patenta þetta, gamli púngur...

... ég veit að púngur á ekki að vera með ú-i... ég er með skáldaleyfi

... bessa-skáldaleyfi sko.

ég er farinn að læra.

*murph*

"... they were modest, mouse colored people..."Árni Baldur Möller

í kvöld er ég að fara á tónleikar með modest mouse og hlakka ég bara býsna mikið til. það er ekkert svo langt síðan ég ljáði þessari frábæru hljómsveit fyrst eyra en þeir hafa farið um allnokkrar stærðargráður upp í áliti hjá mér á skömmum tíma. ekki skemmir heldur fyrir að johnny marr, fyrrverandi smiths gítaristi er einn af meðlimum hljómasveitarinnar sem hafa innanborðs tvo gítarleikara, tvo bassaleikara og tvo trommuleikara. tónleikarnir áttu upphaflega að vera 13. júní en þeim var frestað vegna þess að söngvarinn isaac brock þurfti að láta lappa upp á vinstra augað sitt eftir að hafa fengið illa þegið flöskuskeyti beinustu leið í það á tónleikum.

fyrir þá sem ekki þekkja til hljómsveitarinnar finnst mér við hæfi að henda hér inn nokkrum hljóðdæmum svo menn viti hvað um ræðir.

Doin' the Cockroach! af plötunni The Lonesome Crowded West

Float On af plötunni Good News For People Who Love Bad News

Dashboard af plötunni We Were Dead Before The Ship Even Sank


enjoy...

adiós!

SjálfstilvitnunÁrni Baldur Möller

Ég var að rifja upp athugasemd sem ég kom sjálfur með fyrir nokkru sem svona þegar ég pæli í núna er bara nokkuð fyndin. Ákvað að deila henni með restinni af heiminum.

Að vera í stærðfræðinámi í háskóla og gera meistaraverkefni í hagnýtri stærðfræði er eins og að vera í líffræðinámi og gera meistaraverkefni um Leprechauns.
-ÁBM '07

Mogrunblaţiđ á nedinu?Árni Baldur Möller

Ég, eins og vafalaust margir aðrir íslenskir vefnotendur, fletta upp mbl.is á netinu til að halda puttanum á púlsinum. Mér þykir þó upp á síðkastið að fréttaritarar mbl.is vera að senda frá sér alveg gífurlegt magn af augljóslega óprófarkarlesnum skrifum. Það er nú ekki beint eins og greinarnar séu af slíkri lengd að einn auka yfirlestur hjá atvinnufréttamönnum eigi að vera svona óyfirstíganlegur. Ég nenni ekki að hrauna inn hérna einhverjum hlekkjum inn á góð dæmi en ég get bent á frétt sem ég held að ég hafi lesið þar í gær þar sem verið var að telja upp árangur hinna ýmsu þjóða á hinum frábæru Smáþjóðaleikum og var tvisvar sinnum rangt farið með stafsetningu orðsins "silfur" í greininni og í stað þess stóð "silur". Slík villa ætti ekki að fara framhjá atvinnupennum. Einnig má benda á að nýjasta fyrirsögnin á mbl.is (þegar þessi grein er skrifuð) reynir að greina frá því að einhverjir ringlaðir kajakræðarar séu loks fundnir en kemur því ekki frá sér á skárri hátt en að þeir séu "fundir". Mjög ófagmannlegt alltsaman.

Ég sem sjálfstæður bloggari áskil mér rétt til prófarkarlesa ekki þennan póst þar sem lesendur þessarar síðu virðast hvort sem er vera af afar skornum skammti. Mbl.is er víst með eitthvað um kvartmilljón lesenda á viku hverri.

Ég lofa þó að ég fer að prófarkarlesa mín skrif þegar ég fæ yfir 100.000 lesendur á viku.... þar til þá ædla jég bara aþ skriva kverni sem mér sínist!
Síđa 1 af 2

Könnun

Gott netvafrrrr